Pottar
Það getur verið til mikilla leiðinda ef það brennur við í pottum og erfitt getur verið að hreinsa þá vel. Við mælum með því að þú setjir eina matskeið af uppþvottavélardufti í pott og hellir heitu vatni í, en bara rétt til að fylla botninn, látir standa yfir nótt og þá ætti að vera auðvelt að hreinsa pottinn svo hann verði eins og nýr. Nú svo er alltaf gamla góða húsráðið að nota matarsóta. Það er misjafnt eftir framleiðendum hvort pottar megi fara í uppþvottavél. En það er vitað að allir pottar halda sér betur ef þeir eru ekki settir í uppþvottavél og sumir pottar hreinlega skemmast af því.
« Til baka