Matarstell
Ef þú átt matarstell sem er farið að láta á sjá, t.d. rispur eftir hnífapör, þá er mjög auðvelt að hreinsa þessar rispur burt með ræstidufti sem ekki rispar. T.d. hreinsiefni fyrir keramik eldavélaborð. Settu efnið í rakan eldhússvamp og nuddaðu laust. Skolaðu og hreinsaðu svo með uppþvottalegi, eða í uppþvottavél. Eins eigum við mjög gott stálhreinsiefni frá Georg Jensen sem virkar vel.
Algengasta ástæðan fyrir því að það koma svartar rispur á diska er að uppþvottavélin er óhrein og í hana hafa safnast efni úr hnífapörum og öðru stáli. Hægt er að kaupa í öllum helstu matvöruverslunum sérstakt efni til að hreinsa uppþvottavélar.
Ef þú átt matarstell skreytt með gulli eða platínu þá skalt þú fara varlega í að þvo það í uppþvottavél svo skreytingin skemmist ekki. Skolaðu áður en þú setur í vélina, notaðu mjög LÍTIÐ uppþvottarvéladuft og alls ekki þessar sterku pillur og hafðu vélina stillta á lágan hita.
