Hvað er 18/8 stál?

Ef þú lítur ofan í hnífaparaskúffuna þína, þá finnur þú vafalaust hnífapör eða önnur eldhúsáhöld sem merkt eru "18/8 Stainless Steel". En hvað þýðir þessi merking?

18/8 lýsir innihaldsefnum áhaldsins, þ.e. að það er gert úr 18% krómi og 8% nikkel. Afgangurinn er hefðbundið stál, þó kunni að leynast önnur efni í snefilmagni í áhaldinu. Þessi blanda er ryðfrí og þolir því vel þvott í uppþvottavélum.

Við mælum með því að notað sé froðulaust þvottaefni í uppþvottavélarnar svo að áhöldin haldi upprunalegri áferð sinni. Varast ber að nota stálull eða pottskrúbba á eldhúsáhöldin, þá er næsta víst að glansandi áferðin tapist og áhöldin verði mött.

« Til baka