Georg Jensen
Johanne Jensen var kona Georg Jensen og stóra ástin í lífi hans og á samverutíma þeirra hannaði hann sín bestu verk. Nú hefur Georg Jensen A/S hannað nýja línu í jólaskrauti til að heiðra minningu Johanne.
Þessar vörur fást að sjálfsögðu í Líf og List Smáralind.
Pönnur
Það ber að varast að ofhita pönnur áður en byrjað er að steikja, því ef það gerist er meiri hætta á að krydd brennist inn í yfirborð pönnunar og skemmi hana. Allar teflon húðaðar pönnur sem við seljum í Líf og List eru með nýjustu tegund af teflon sem er algjörlega eiturefnalaust. Því er það ekki skaðlegt heilsunni ef hún rispast. En til að panna haldist heil og góð í langan tíma ber að varast að ofhita hana og lang best er að handþvo potta og...
+ Lesa nánarPottar
Það getur verið til mikilla leiðinda ef það brennur við í pottum og erfitt getur verið að hreinsa þá vel. Við mælum með því að þú setjir eina matskeið af uppþvottavélardufti í pott og hellir heitu vatni í, en bara rétt til að fylla botninn, látir standa yfir nótt og þá ætti að vera auðvelt að hreinsa pottinn svo hann verði eins og nýr. Nú svo er alltaf gamla góða húsráðið að nota matarsóta. Það er misjafnt eftir framleiðendum hvort pottar...
+ Lesa nánarMatarstell
Ef þú átt matarstell sem er farið að láta á sjá, t.d. rispur eftir hnífapör, þá er mjög auðvelt að hreinsa þessar rispur burt með ræstidufti sem ekki rispar. T.d. hreinsiefni fyrir keramik eldavélaborð. Settu efnið í rakan eldhússvamp og nuddaðu laust. Skolaðu og hreinsaðu svo með uppþvottalegi, eða í uppþvottavél. Eins eigum við mjög gott stálhreinsiefni frá Georg Jensen sem virkar vel.
Algengasta ástæðan fyrir því að það koma...
Kertavax
Það getur verið erfitt að ná kertavaxi úr dúkum og best að hreinsa það alveg burtu áður en dúkur er þveginn. Best er að fjarlægja eins mikið af vaxinu og hægt er þegar það kólnar og setja svo hreinan bómullarklút yfir vaxblettinn og strauja vaxið upp í klútinn aftur og aftur þangað til það er horfið.
+ Lesa nánarBörn
Það er ótrúlegt hvað lítil börn ná fljótt tökum á því að nota hnífapör og drekka úr glasi. Það er líka mikilvægt að hnífapörin séu í réttri stærð og að litlir fingur nái utan um glasið. Við eigum mikið úrval af barnaborðbúnaði. Svo látum við fljóta hér með gott ráð frá ömmu Maríu. „Það er auðveldara að þurrka litla fingur eftir máltíðina en þurrka allt í húsinu sem þau snerta með óhreinum puttum“
+ Lesa nánarStál
Stálhreinsiefnið frá Georg Jensen má nota á allar stálvörur sem þú vilt pússa. Glimrandi gott efni. Það er líka gott að nota glugga- og spegla hreinsiefni þegar þú vilt afmá fingraför og fitu af stálmununum þínum.
+ Lesa nánarHvað er 18/8 stál?
Ef þú lítur ofan í hnífaparaskúffuna þína, þá finnur þú vafalaust hnífapör eða önnur eldhúsáhöld sem merkt eru "18/8 Stainless Steel". En hvað þýðir þessi merking?
18/8 lýsir innihaldsefnum áhaldsins, þ.e. að það er gert úr 18% krómi og 8% nikkel. Afgangurinn er hefðbundið stál, þó kunni að leynast önnur efni í snefilmagni í áhaldinu. Þessi blanda er ryðfrí og þolir því vel þvott í uppþvottavélum.
Við mælum með því...
